Yfir 50 þúsund undirskriftir

Rauð blys á Austurvelli
Rauð blys á Austurvelli mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Undirskriftum fjölgar stöðugt á vef InDefence þar sem fólk skorar á forseta Íslands, Ólaf Ragnar Grímsson, að synja nýjum Icesave lögum staðfestingar og ríkisábyrgðin verði borin undir íslensku þjóðina í  þjóðaratkvæðagreiðslu. Alls hafa rúmlega 50.500 einstaklingar skrifað undir áskorunina.

Undirskriftirnar verða afhentar forseta Íslands á laugardag, 2. janúar, en hann skrifaði ekki undir lögin í dag þegar ríkisráð Íslands kom saman á Bessastöðum.

Hér er hægt að skrifa undir áskorunina

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert