Joly: Átti ekki að takast á við hrun heils bankakerfis

Eva Joly
Eva Joly

Eva Joly, ráðgjafi embættis sérstaks saksóknara,  segist hafa fengið það staðfest hjá höfundum Evrópureglugerðarinnar um innstæðutryggingar, sem liggur til grundvallar Icesave-deilunni, að reglugerðinni hafi aldrei verið ætlað að takast á við hrun bankakerfis heillar þjóðar. Þetta kemur fram í viðtali RÚV við Joly.

Joly segir að verið sé að fjalla um samkomulag sem eigi að gilda til 2024 svo að tíminn til að semja sé nægur. Það sé settur alltof mikill þrýstingur á íslensk stjórnvöld. Hún telur að menn verði að fara á byrjunarreit með málið.

Nauðsynlegt sé að minnast þess að meingölluð Evrópureglugerð frá 1994 um tryggingasjóð innstæðueigenda hafi valdið þessum vanda.

Reglurnar sjálfar kveði ekki á um ríkisábyrgð. Hún segist einnig hafa rætt við þá menn sem sömdu reglugerðina á sínum tíma, til þess að öðlast skilning á henni.

Þeir hafi tekið það skýrt fram að reglugerðinni hafi ekki verið ætlað að taka gildi við hrun meðal þjóða eða hrun heilla bankakerfa. Íslendingar hafi því öflug rök fyrir því að ábyrgðin sé ekki eingöngu Íslands heldur Evrópu allrar. Staðan sé því einstök og kalli á nýjar lausnir.

Hér er hægt að hlusta á viðtalið í heild á vef RÚV

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert