Óskýrt evrópskt regluverk

Steingrímur J. Sigfússon var í viðtali viðð Channel 4 á …
Steingrímur J. Sigfússon var í viðtali viðð Channel 4 á ísilagðri Reykjavíkurtjörn. Kristinn Ingvarsson

Steingrímur J. Sigfússon sagði í viðtali við bresku sjónvarpsstöðina Channel 4 um Icesave að ábyrgð ríkja sé ekki skýr í evrópska regluverkinu. Hann sagði að Íslendingar séu ekki ánægðir með að hafa ekki fengið dómsúrskurð um hver ábyrgð Íslendinga sé í raun.

Steingrímur sagði einnig að Íslendingar telji að gallað evrópuregluverk sé hluti vandans. Hér sé því einnig um samevrópska ábyrgð að ræða. Þá benti Steingrímur á að ekki hafi verið bætt fyrir hið mikla tjón sem bresk stjórnvöld ollu þegar þau felldu íslenska banka í Bretlandi. 

Viðtal Channel 4 við Steingrím J. Sigfússon

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert