Langur en rýr fundur

Bjarni Benediktsson kemur til fundar í Stjórnarráðinu
Bjarni Benediktsson kemur til fundar í Stjórnarráðinu mbl.is/Golli

Löngum fundi formanna ríkisstjórnar- og stjórnarandstöðuflokkanna er nú lokið í stjórnarráðinu en lengd fundarins var ekki í samræmi við útkomuna að sögn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar.  Þá segir Bjarni Benediktsson stjórnarandstöðuna ekki fá mikil svör.

„Forsætisráðherra vildi setja okkur inn í það sem hefur gerst frá því við töluðum saman síðast, það er ekki margt en það eru líka tíðindi að við fáum ekki mikil svör,“ segir Bjarni. „Við ræddum á þessum fundi um það  hvernig við myndum standa að samræðu okkar í milli í gegnum þingið ef viðræður færu að nýju af stað. Það er ekki flókið mál fyrir mér.

Hitt er miklu mikilvægara og hangir ennþá í lausu lofti: Komast viðræður af stað? Og á hvaða forsendum eru viðsemjendur okkar tilbúnir að ræða við okkur? Það er fyrir mér algjört grundvallaratriði. Ég er ekki tilbúinn til að standa að viðræðum í þessu máli á þeim forsendum sem málið var leitt til lykta á.“

Sigmundur Davíð segir að á þessum fundi, sem er sá þriðji sem haldinn er síðan forseti neitaði að skrifa undir Icesave lögin, hafi verið áframhaldandi vangaveltur um það á hvaða nótum eigi að fara í þessar viðræður.  Aðspurður um viðræður við Hollendinga og Breta segir Sigmundur að ráðherrarnir gefi „ekkert uppi um við hverja er verið að tala og hvað þá hvað þeir eru að segja.“

Bjarni segir hinsvegar augljóst að samskipti hafi að undanförnu verið á milli forsætis, -utanríkis, -og fjármálaráðherra við starfsbræður sína erlendis auk þess leitað hafi verið ráða annars staðar. „En lykilspurningin er sú hvort þessar aðstæður sem hafa skapast hér opni einhver ný tækifæri fyrir okkur og við henni hefur ekki fengist neitt svar ennþá.“

Annar fundur er fyrirhugaður á miðvikudag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert