Yfir 4.000 án vinnu í eitt ár eða lengur

Atvinnuleysi hefur vasið síðustu mánuðina.
Atvinnuleysi hefur vasið síðustu mánuðina. Ómar Óskarsson

Skráð atvinnuleysi í janúarmánuði mældist 9% eða að meðaltali 14.705 manns. Þetta þýðir að 929 manns bættust við á atvinnuleysisskrá í janúar. 4.005 manns hafa verið án vinnu í eitt ár eða lengur.

Á sama tíma á árinu 2009 var atvinnuleysi 6,6%, sem þýðir að þá voru 10.456 manns að jafnaði án vinnu.

Atvinnuleysið er 9,5% á höfuðborgarsvæðinu en 8,1% á landsbyggðinni. Mest er það á Suðurnesjum 14,5% en minnst á Vestfjörðum 3,4%.   Atvinnuleysi eykst um 7,4% meðal karla en um 5,7% meðal kvenna.  Atvinnuleysið er 9,9% meðal karla og 7,9% meðal kvenna.

Alls voru 16.382 atvinnulausir í lok janúar.  Þeir sem voru atvinnulausir að fullu voru hins vegar 13.424, af þeim voru 1.569 í einhvers konar úrræðum á vegum Vinnumálastofnunar, auk þess sem mikill fjöldi fer í ráðgjafarviðtöl og á kynningarfundi.

Fjöldi þeirra sem hafa verið atvinnulausir lengur en 6 mánuði er nú 7.367 og fækkar um 90 frá lokum desember og er um 45% þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá í lok janúar. Þeim sem verið hafa atvinnulausir í meira en eitt ár fjölgar talsvert eða úr 3.224 í lok desember í 4.005 í lok janúar.
Alls voru 3.080 á aldrinum 16‐24 ára atvinnulausir í lok janúar en 2.754 í lok desember eða um 19% allra atvinnulausra í janúar.

Yfirleitt versnar atvinnuástandið frá janúar til febrúar m.a. vegna árstíðasveiflu. Ekki hafa orðið miklar breytingar á nýskráningum fyrstu daga febrúar og áætlar Vinnumálastofnun að atvinnuleysið í febrúar breytist lítið og verði á bilinu 8,9%-9,3%.  Í fyrra var atvinnuleysið 8,2% í febrúar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert