Ekki gerð athugasemd við VÍS

Vátryggingafélag Íslands
Vátryggingafélag Íslands

Vátryggingafélag Íslands hefur sent frá sér tilkynningu þar sem tekið er fram að Fjármálaeftirlitið hafi ekki gert athugasemdir við félagið en FME tiltók ekki um hvaða félög var að ræða þegar það opinberaði athugasemdir við iðgjöld og viðskiptahætti tveggja tryggingafélaga.

Tilkynning VÍS 
Á vef Fjármálaeftirlitsins (FME) í dag kemur fram að FME hafi gert athugasemdir við viðskipti tveggja tryggingafélaga þegar iðgjöld og viðskiptahættir vátryggingafélaganna voru til skoðunar á síðari hluta ársins 2009.  Vegna þessa óskar VÍS eftir að fram komi að FME gerði ekki athugasemdir við iðgjöld eða viðskiptahætti VÍS, en einhverra hluta vegna kaus FME að tilgreina ekki hvaða félög var gerð athugasemd við.
 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert