Bænastund á Austurvelli

Bænastund verður á Austurvelli á miðvikudag.
Bænastund verður á Austurvelli á miðvikudag. Ómar Óskarsson

Fulltrúar kristinna trúfélaga á höfuðborgarsvæðinu ætla að koma saman til stuttrar bænastundar á Austurvelli n.k miðvikudag, 3. mars,  kl. 12:30. Tilgangurinn er að biðja fyrir þjóðinni og ráðamönnum hennar. Með því vill hópurinn undirstrika að kristið fólk ber hag þjóðarinnar mjög fyrir brjósti.

Hópurinn hefur hist í hádeginu á miðvikudögum í Friðrikskapellu í rúmlega eitt og hálft ár til að biðja fyrir íslensku þjóðinni, velferð hennar og lausn á margvíslegum vanda. Bænastundirnar hófust tveimur mánuðum fyrir hrun og hafa haldið áfram síðan, að því er segir í fréttatilkynningu.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert