Haraldur endurkjörinn formaður

Ný stjórn Bændasamtakanna. Frá vinstri, Jóhannes, Vigdís, Sigurbjartur, Haraldur, Sveinn, …
Ný stjórn Bændasamtakanna. Frá vinstri, Jóhannes, Vigdís, Sigurbjartur, Haraldur, Sveinn, Guðný og Árni.

Haraldur Benediktsson var endurkjörinn formaður Bændasamtaka Íslands á búnaðarþingi sem nú stendur yfir. Haraldur fékk öll 45 atkvæði þeirra sem sitja á búnaðarþingi.

Sex aðrir voru kosnir í stjórn með Haraldi, en ellefu þingfulltrúar gáfu kost á sér til stjórnarsetu. Úrslit kosninganna urðu þau að Sveinn Ingvarsson í Reykjahlíð fékk 45 atkvæði, Jóhannes Sigfússon á Gunnarsstöðum fékk 41 atkvæði, Sigurbjartur Pálsson á Skarði fékk 40 atkvæði, Vigdís M. Sveinbjörnsdóttir á Egilsstöðum fékk 40 atkvæði, Árni Brynjólfsson á Vöðlum fékk 23 atkvæði og Guðný Helga Björnsdóttir á Bessastöðum fékk 22 atkvæði.

Einar Ófeigur Björnsson í Lóni var næstur inn í stjórn og hlaut 20 atkvæði. Þeir Sveinn, Jóhannes og Sigurbjartur sátu allir í síðustu stjórn Bændasamtakanna en þau Vigdís, Árni og Guðný Helga koma ný inn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert