Fundi samninganefndar Íslands í Icesave-málinu með Bretum og Hollendingum er lokið. Eins og er eru ekki fleiri fundir fyrirhugaðir í kvöld, segir Guðmundur Árnason, einn þeirra sem situr í samninganefndinni. Hann segist ekkert geta sagt um útkomu fundarins.
Minnihlutinn fékk rétt fyrir klukkan þrjú skilaboð frá sínum fulltrúa í nefndinni, um að samninganefndin væri að fara til fundarins.
Ekki
var haldinn símafundur í morgun milli formanna stjórnmálaflokkanna og
samninganefndarinnar, eins og til stóð, þar sem rétt þótti að bíða með
það þar til eftir fundinn sem nú er lokið. Ekki hefur neitt verið
ákveðið um mögulegan símafund í kvöld.