Skóverð hækkaði um fimmtung

Samkvæmt útreikningi Rannsóknarseturs verslunarinnar má sjá að velta í dagvöruverslun dróst saman um 1,1% á föstu verðlagi í febrúar miðað við sama mánuð í fyrra og jókst um 5,4% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum minnkaði velta dagvöruverslana í febrúar um 0,8% frá febrúar í fyrra. Verð á dagvöru hækkaði um 6,5% á þessu 12 mánaða tímabili.

 

„Sala áfengis minnkaði um 13,1% í febrúar miðað við sama mánuð árið áður á föstu verðlagi og jókst um 2,7% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum nam samdráttur í veltu áfengis í febrúar 12,7% frá sama mánuði í fyrra. Verð á áfengi var 18,2% hærra í febrúar síðastliðnum en í sama mánuð í fyrra.

 

Fataverslun var 5,2% minni í febrúar miðað við sama mánuð árið áður á föstu verðlagi en jókst um 6,5% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum minnkaði velta fataverslunar um 5,2%. Verð á fötum var 12,4% hærra í febrúar síðastliðnum en í sama mánuði ári fyrr. 

 

Velta skóverslunar dróst saman um 9,2% í febrúar á föstu verðlagi og jókst um 8,9% á breytilegu verðlagi miðað við sama mánuð í fyrra. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum dróst velta skóverslunar saman um 9,2%. Verð á skóm hækkaði í febrúar um 19,9% frá febrúar í fyrra.

 

Velta húsgagnaverslana var 27,2% minni í febrúar en í sama mánuði í fyrra á föstu verðlagi og 16,9% minni á breytilegu verðlagi. Verð á húsgögnum var 14,1% hærra í febrúar síðastliðnum miðaða við sama mánuð í fyrra.

 

Sala á raftækjum í febrúar jókst um 2% á föstu verðlagi frá sama mánuði í fyrra og um 16,1% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Verð á raftækjum hækkaði um 13,8% frá febrúar 2009.“ Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Rannsóknarsetri verslunarinnar á Háskólanum á Bifröst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert