Öskufall byrjað í byggð

Markarfljót. Á myndinni sjást Eyjafjallajökull og Stóri-Dímon.
Markarfljót. Á myndinni sjást Eyjafjallajökull og Stóri-Dímon. www.mats.is

Almannavarnir ríkislögreglustjóra hafa staðfest að eldgos í Eyjafjallajökli en öskufall er í Fljótshlíð og bjarmi sést frá mörgum stöðum í byggð. Búið að virkja samhæfingarstöð Almannavarna í Skógarhlíð og verið er að rúma byggðina í Fljótshlíð og undir Eyjafjöllum sem talin er vera á hugsanlegu hættusvæði.

Eyjafjallajökull er megineldstöð og þótt gos þar hafi almennt ekki verið hamfaragos gætu afleiðingarnar orðið miklar á stóru landsvæði allt umhverfis jökulinn þar sem eru blómlegar sveitir, en rýmingaráætlun almannavarnadeildar nær allt frá Pétursey undir Eyjafjöllum út Fljótshlíðina og til Þykkvabæjar.

Verði gosið með svipuðum hætti og fyrir 189 árum þegar síðast gaus má búast við töluverðu öskufalli í sveitum og því nauðsynlegt að forða fé frá flúoreitrun auk þess sem ekki er hægt að útiloka hættu af hraunrennsli. Þar sem eldgosið yrði undir ís stafar þó mest hætta af jökulhlaupi. Í hættumati sem gefið var út árið 2005 fyrir ríkislögreglustjóra vegna eldgosa og hlaupa frá vestanverðum Mýrdalsjökli og Eyjafjallajökli kemur fram að gos á þessu svæði eru talin geta valdið jökulhlaupum með rennsli á bilinu 3.000-30.000 m³/s.

Viðvörunartími vegna eldgosa og hlaupa á svæðinu getur verið mjög stuttur en þar skiptir máli hvar upptök gossins eru. Í hættumatinu kemur fram að víðast hvar næðu hlaup fjallsrótum og byggð aðeins 15-30 mínútum eftir að gos hefst. Verði gos í norðvestanverðum Eyjafjallajökli gæti hlaup náð að varnargörðum við Fljótshlíð á 45-60 mín.

Mikil skjálftavirkni hefur verið í Eyjafjallajökli undanfarna mánuði þótt skjálftarnir hafi ekki verið stórir. Ákvað almannvarnadeild ríkislögreglustjóra  í byrjun mars að virkja áætlunina á fyrsta háskastigi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert