Sérstakt farþegagjald lagt á

Farþegar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Farþegar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. mbl.is/Þorkell

Samgönguráðherra hefur ákveðið að leggja sérstakt farþegagjald á alla farþega sem fara um Keflavíkurflugvöll. Gjaldið nemur 150 krónum á hvern farþega. Til viðbótar hækkar flugverndargjald. Hækkunin tekur gildi 1. júní nk.

Samkvæmt gjaldskránni hækkar flugverndargjald frá og með 1. júní nk. Gjald fyrir fullorðna farþega hækkar úr 620 kr. í 950 kr. og fyrir börn 2-12 ára úr 285 kr. í 435 kr. Ástæðan fyrir hækkuninni er auknar kröfur sem snúa að flugvernd.

Samkvæmt gjaldskránni verða engar breytingar á lendingargjöldum. Nýja farþegagjaldið rennur í ríkissjóð.

Í fyrra fóru 1.658 þúsund farþegar um Keflavíkurflugvöll. Búist er við talsverðri aukningu á þessu ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert