Eignir Knattspyrnuakademíu seldar

Kópavogur og Knattspyrnuakademían sömdu um uppbyggingu mikillar íþróttaaðstöðu í Kórahverfi.
Kópavogur og Knattspyrnuakademían sömdu um uppbyggingu mikillar íþróttaaðstöðu í Kórahverfi. Rax / Ragnar Axelsson

Kópavogsbær hefur keypt eignir í Kórahverfi af Knattspyrnuakademíu Íslands fyrir 1,6 milljarða króna, að því er Viðskiptablaðið greinir frá í dag. Talið var fyrirsjáanlegt að Knattspyrnuakademían gæti ekki staðið við skuldbindingar sínar. 

Viðskiptablaðið hefur eftir Ármanni Kr. Ólafssyni, forseta bæjarstjórnar Kópavogs, að bærinn hafi keypt mannvirki sem Knattspyrnuakademían ætlaði að eiga því það sé talið verða minni fjárskuldbinding fyrir bæjarfélagið. Gerðir höfðu verið verðtryggðir leigusamningar til 25 ára um að bærinn leigði eignirnar.

Um er að ræða íþróttaaðstöðu sem hefur verið byggð upp í Kórahverfinu í Kópavogi í samstarfi við Knattspyrnuakademíu Íslands. Kópavogsbær kaupir íþróttamannvirkin af Knattspyrnuakademíu Íslands en í samningum felst einnig að samningar milli Knattspyrnuakademíu Íslands og lánastofnana eru gerðir upp.

Fram kemur í blaðinu að helstu aðstandendur Knattspyrnuakademíu Íslands séu Eiður Smári Guðjohnsen, leikmaður Tottenham á Englandi, Arnór Guðjohnsen, faðir Eiðs Smára, Guðni Bergsson, fyrrverandi landsliðsfyrirliði og nú starfandi lögmaður, Logi Ólafsson, þjálfari KR, og Ásgeir Sigurvinsson, fyrrverandi atvinnumaður í knattspyrnu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert