Langar að flytja út

Unglingar eru tæpast á hlaupum úr landi.
Unglingar eru tæpast á hlaupum úr landi. Morgunblaðið/Árni Sæberg

Nærri helmingur íslenskra unglinga vill helst flytja af landi brott. Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknar Háskólans á Akureyri sem náði til allra 15-16 ára skólanema á Íslandi.

Yfir landið í heild vildu 43% unglinganna helst búa erlendis í framtíðinni en 32% á höfuðborgarsvæðinu, en þess ber að geta að 57% svarenda bjuggu á höfuðborgarsvæðinu veturinn 2009-10.

Minnstur var munurinn á hlutfalli þeirra sem helst vildu búa á höfuðborgarsvæðinu og helst vildu búa í útlöndum meðal unglinga í Reykjavík. Þar vildu 43% unglinganna helst búa áfram á höfuðborgarsvæðinu en 47% vildu helst búa erlendis.

Í rannsókninni kemur einnig fram að hlutfall íslenskra unglinga sem eru mjög stoltir af því að vera Íslendingar hefur lækkað úr 68% árin 2007 í 56% árið 2010.


Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert