100.000 gesturinn í Hlíðarfjalli

Sigríður Jónsdóttir frá Húsavík var leyst út með gjöfum í …
Sigríður Jónsdóttir frá Húsavík var leyst út með gjöfum í tilefni þess að hún var 100.000 gesturinn í Hlíðarfjalli í vetur.. Hlíðarfjall

100.000. gesturinn í Hlíðarfjall ofan Akureyrar á þessum vetri kom í fjallið klukkan tvö í dag. Sigríður Jónsdóttir frá Húsavík var gestur númer 100.000. Hún var verðlaunuð með vetrarkorti í Hlíðarfjalli næsta vetur og flugferð til Reykjavíkur með Flugfélagi Íslands.

Flugfélagið er í hópi fyrirtækja sem eru „Vinir Hlíðarfjalls“ og styðja við starfsemina. Tíðarfar hefur verið skíðafólki einkar hagstætt í vetur í Hlíðarfjalli. Vertíðin hófst 28. nóvember og stendur enn í miklum blóma með nægum snjó og góðu skíðafæri.

Síðasta opnunarhelgi í Hlíðarfjalli er frá 30. apríl til 2. maí. Þá verður opið á föstudag frá kl. 13-21 og á laugardag og sunnudag frá 9-15.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert