Meiri ofsi virðist í eldgosinu í Eyjafjallajökli. Upplýsingar hafa borist í kvöld um að gosmökkurinn sé kominn í 31 þúsund feta hæð en í dag var hann í um 20 þúsund fetum.
Aukin skjálftavirkni undir Eyjafjallajökli bendir til þess að nýtt efni sé að koma djúpt að upp undir fjallið og GPS-mælingar benda til útþenslu á ný. Útþenslan er ekki mikil enn sem komið er. Ekkert bendir til þess að gosi sé að ljúka. Þetta er meðal þess sem kemur fram í stöðuskýrslu Veðurstofunnar og Jarðvísindastofnunar í kvöld.
Sigurlaug Hjaltadóttir, jarðeðlisfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir ekki enn vitað hvort upp sé að koma það efni sem fyrir var eða nýja efnið sem vísbendingar hafa verið um að væri að koma djúpt að fjallinu.
Á minnisblaðinu kemur fram að vitað er um gjóskufall á Sólheimaheiði, við Hjörleifshöfða og í Álftaveri.
Gísli Foster Hjartarson:
Dökkur og ljótur
Guðni Ólason:
Ég hef nú bara ekki nokkrar áhyggjur....
Anna Sigríður Guðmundsdóttir:
Jæja! Og hvað?
Jón Snæbjörnsson:
Vissara að vera ekki fyrir ...........
Arnþór Helgason:
Söfnun hljóðsýna
Haraldur Haraldsson:
Gosmökkur í 31 þúsund feta hæð !!!!!
Pálmi Freyr Óskarsson:
Myndir í kvöld og nótt séð frá Stórhöfða
josira:
Krafturinn undir kraumar og mallar ...
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir:
Áhyggjuefni hvernig háloftavindarnir blása núna
Guðni Gíslason:
Er ekki búið að taka upp metrakerfið á Mogganum?
Stefán Stefánsson:
Náttúruhamfarir
Guðrún María Óskarsdóttir.:
Ef heldur fram með sama hamagangi.
