Fjöldahjálpastöðvar opnaðar

Frá Vík í Mýrdal í morgun
Frá Vík í Mýrdal í morgun mbl.is/Jónas Erlendsson

Þar sem öskufall hefur verið mikið í Vík og nágrenni og svifryksmælingar í Vík hafa farið langt yfir heilsuverndarmörk hefur Rauði krossinn opnað tímabundið fjöldahjálparstöðvar í Vík og á Kirkjubæjarklaustri.

Almannavarnir biðja þá sem ætla að fara af öskufallssvæðum um að skrá sig í fjöldahjálparstöð Rauða krossins. Í Vík er fjöldahjálparstöðin í Félagsheimilinu Leikskálum Víkurbraut 8 og á Kirkjubæjarklaustri í grunnskólanum.

Hagnýt ráð:

Ráðlegt er að þeir sem eiga þess kost dvelji ekki á svæði þar sem öskufall er vel sýnilegt en þeir sem þurfa að dvelja á öskufallssvæðum haldi sig sem mest innanhúss.

Dragið úr öskumagni innanhúss með því að þétta glugga með límbandi. Ösku, sem fellur innanhúss er mikilvægt að hreinsa upp jafnóðum.

Gætið þess að þyrla upp eins litlu af gosösku og mögulegt er þar sem hún hefur fallið.

Úti við er mikilvægt að nota grímur og augnhlífar. Eiga þarf birgðir af grímum og skipta reglulega. Hægt er að nálgast grímur á heilsugæslustöðvum á öskufallssvæðum, fjöldahjálparstöðvum og í þjónustumiðstöðinni í Heimalandi.

Akstur þyrlar upp ösku og því er mikilvægt að aka ekki nema nauðsyn krefji og gæta þess að halda ökuhraða í lágmarki.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert