Algjört met í flugumferðinni

Oft var þröng á þingi á Akureyrarflugvelli þegar þotur og …
Oft var þröng á þingi á Akureyrarflugvelli þegar þotur og farþegar streymdu á flugvöllinn. mbl.is/Eiríkur K. Aðalsteinsson.

Met var slegið í flugumferð um íslenska flugstjórnarsvæðið í gær. Í nótt hélt flugumferðin áfram að vera mikil og má búast vð að svipuðum degi í dag. Alls 758 flugvélar komu inn á svæðið á síðasta sólarhring, það er langt yfir þeim tölum sem Isavia (áður Flugstoðir) hafa áður séð. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu þaðan.

Umferðin skiptist þannig að 438 flugvélar flugu frá Evrópu til Norður Ameríku en 320 flugvélar frá Norður Ameriku til Evrópu. Þessar umferðartölur slá öll fyrri met og miðað við áætlanir í dag er ekki ólíklegt að svipuð umferð eða meiri komi inn á svæðið í dag.

Það er ljóst að mikið álag er á flugumferðarstjórum og fluggagnafræðingum Isavia sem starfa í flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík, en það hefur sýnt sig að starfsfólkið og fyrirtækið er vel í stakk búið til að takast á við verkefnið, að sögn upplýsingafulltrúa Isavia.

Hér að neðan eru flugumferðartölur síðustu ára, þeir dagar sem áður voru metdagar.

22.ágúst 2005- 501 flugvélar

9.maí 2008 - 503 flugvélar

18.ágúst 2007 - 522 flugvélar

9.september 2008 - 525 flugvélar

7.júlí 2007 - 533 flugvélar

1.ágúst 2009 - 543 flugvélar

30.júní 2005 - 546 flugvélar

8.júlí 2007 - 563 flugvélar

22.júlí 2007 - 528 flugvélar

1.júlí 2008 - 576 flugvélar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert