Segir skilyrði sín vera alvanaleg

Sigurður Einarsson er eftirlýstur á vef Interpol, alþjóðalögreglunnar.
Sigurður Einarsson er eftirlýstur á vef Interpol, alþjóðalögreglunnar.

Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, tjáði Morgunblaðinu í gær að honum hefði ekki tekist að fá það gefið upp á hverju hin alþjóðlega handtökuskipun, sem gefin hefði verið út á hendur honum, byggðist.

Að öðru leyti veitti hann ekki viðtal en lét hafa eftir sér hjá sænska blaðinu Dagens Industri að íslensk stjórnvöld svöruðu ekki í símann þegar lögmaður hans reyndi að hringja og afla upplýsinga um málið. Handtökutilskipunin væri áróðursverk, gert í þeim tilgangi að búa til fyrirsagnir í fjölmiðlum. Kvaðst hann hafa boðist til að mæta í yfirheyrslur gegn því skilyrði að hann fengi að fara aftur til Bretlands að því loknu. „Slík skilyrði eru alvanaleg í aðstæðum sem þessum,“ sagði hann við sænska blaðið. Sagðist hann vera heima hjá sér í Chelsea og ekkert leynimakk væri í kringum staðsetningu hans. Rannsóknin og yfirheyrslurnar héldu áfram í gær. Ekki voru fleiri handtökur.

Hermt var í fréttum Ríkissjónvarpsins í gær að lögregluyfirvöld í Bretlandi hefðu hafnað beiðni um framsal Sigurðar til Íslands. Þetta fékkst ekki staðfest í gær og hafði dómsmálaráðuneytið ekki upplýsingar um þetta. Ráðuneytið mun hafa sett sig í samband við þarlend yfirvöld til að fá upplýsingar.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert