Haraldur Sigurðsson jarðfræðingur telur sennilegt að sprunga sé undir Eyjafjallajökli. Jarðskjálftar sem urðu þar á föstudaginn raði sér á nokkuð reglulega línu frá suðvestri til norðausturs.
Haraldur segir á heimasíðu sinni að jarðskjálftahrinan sem hófst á föstudaginn sé nokkuð óvenjuleg. „Fjórtán skjálftar röðuðu sér í nokkuð reglulega línu frá suðvestri til norðausturs, eins og kortið frá Veðurstofunni sýnir. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem skjálftar hafa myndað þessa stefnu, en þetta er langgreinilegasta dæmið. Skjálftarnir eru allir fremur litlir, og eru allt frá 1 til 27 km dýpi. Sennilega fylgja þeir vel afmarkaðri sprungu, misgengi eða kvikugangi í jarðskorpunni. Þessi stefna er einmitt aðal sprungustefnan í suður hluta eystra gosbeltisins. Það er rétt að benda á að jarðskjálftar virðast stundum raðast á línur þegar fáir mælar eru virkir, en það á ekki við í þessu tilfelli. “
Axel Jóhann Hallgrímsson:
Sprunga undir Íslandi og ...
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir:
Já
Kristján Þorgeir Magnússon:
Er þetta eitthvað nýtt?
Sigurður Haraldsson:
Góður.
Njörður Helgason:
Vofeigilegur atburður.
Birgir R.:
ÞAÐ VAR NÚ MIKIÐ!
