Rekstur Landspítalans réttu megin við núllið

mbl.is/Þorkell Þorkelsson

Björn Zoëga forstjóri Landspítala segir í pistli á vef spítalans að rekstur hans hafi verið réttu megin við núllið fyrstu fjóra mánuði ársins. Á sama tíma hefur rannsóknum fækkað, skurðaðgerðum einnig og legutími sjúklinga styst.

„Uppgjör fyrsta ársfjórðungs (jan. – apríl) liggur nú fyrir. Spítalinn er réttum megin við strikið (0,4% í plús) sem er gífurlega góður árangur á erfiðum tímum. Á síðustu mánuðum hefur verið óvenju mikið álag en allir hafa lagt sitt fram til að þessi árangur náist.

Þegar rýnt er í starfsemistölur þessa tímabils sést að rannsóknum hefur fækkað um rúm 17%, skurðaðgerðum um rúm 3%, fæðingum hefur fjölgað um 3% og legum fækkað um næstum 6%. Meðaltímalengd hverrar legu hefur styst um 7% og er nú 6,6 dagar.  Komum á bráðamóttökur (allar bráðamóttökur LSH) hefur fækkað um rúm 2%," segir í pistli sem Björn ritar á vef Landspítalans.

Starfsemi Landspítalans

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert