Yfir 5 sm öskulag á Skógaheiði

Mikil aska hefur fallið á Skógaheiði.
Mikil aska hefur fallið á Skógaheiði. Ómar Óskarsson

Um 5,4 sm öskulag er á Skógaheiði. Að mati starfsmanna Landgræðslunnar mun taka langan tíma fyrir gróður á heiðum í nágrenni Eyjafjallajökuls að jafna sig.

Starfsmenn Landgræðslunnar fóru fyrir nokkrum dögum í  vettvangsferð um Skógaheiði, Sólheimaheiði og inn í Þakgil á Höfðabrekkuheiði. Tilgangur ferðarinnar var að skoða aðstæður í kjölfar öskufalls og  meta ástand beitilanda. Landgræðslan hefur sett á laggirnar aðgerðateymi sem fylgist með framvindu mála og metur mögulegar aðgerðir. Þessi ferð var liður í þeirri vinnu.

Mikil aska hefur fallið á heiðarnar næst eldstöðvunum, á Skógaheiði og Sólheimaheiði.  Mun minni aska var á leiðinni inn að Þakgili.

Mest reyndist þykkt öskunnar, þar sem mælt var, 5,4 cm á Skógaheiði.  Það er ljóst að sá lágvaxni góður sem var til staðar á þessum heiðum mun bíða tjón af öskufallinu og að beitarþol landsins verður mjög skert.

Langan tíma mun taka land að jafna sig og verður fylgst nákvæmlega með framvindu og ástandi á þessum svæðum.

Margar myndir eru úr ferðinni inni á vef Landgræðslunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert