Íbúafundur á Hvolsvelli í kvöld

Íbúar á Hvolsvelli þvær ösku af bíl sínum eftir öskufall …
Íbúar á Hvolsvelli þvær ösku af bíl sínum eftir öskufall sl. föstudag. mbl.is/RAX

Íbúafundur í Rangárþingi eystra vegna eldgossins í Eyjafjallajökli verður haldinn í íþróttahúsinu  á Hvolsvelli í kvöld klukkan 20:30. Farið verður yfir þróun eldgossins í Eyjafjallajökli, afleiðingar þess og stöðuna í dag.

Á fundinum munu eftirtalin halda framsöguerindi og svara spurningum íbúa:

Elvar Eyvindsson, sveitarstjóri
Magnús Tumi Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur
Þorsteinn Jóhannsson, svifrykssérfræðingur
Svanur Bjarnason, umdæmisstjóri Vegagerðarinnar á Suðurlandi
Haraldur Briem, sóttvarnalæknir
Hreinn Haraldsson, vegamálastjóri.
Fundarstjóri verður Víðir Reynisson deildarstjóri almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra.

Fundurinn er öllum opinn og allir eru velkomnir.
Einnig verður upplýsingafundur fyrir Pólverja á sama stað kl. 17.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert