Grátt gaman ungmennis

Melaskóli í Reykjavík
Melaskóli í Reykjavík mbl.is/Júlíus

Búið er að finna þann sem stofnaði Facebook-síðu með hótun um að sprengja Melaskóla. Samkvæmt tilkynningu lögreglunnar er stofnandinn ungur að árum. Hann  „gerði þetta í þeim tilgangi að grínast og var alls engin alvara bak við hótunina,“ samkvæmt tilkynningu lögreglunnar.

Lögreglan hefur skoðað uppruna Facebook síðunnar sem stofnuð var þar sem höfundur gaf til kynna að hann myndi sprengja Melaskóla ef hann fengi ákveðinn fjölda áhangenda að síðu sinni.
 
Lögreglan hefur rætt við viðkomandi og verður málið unnið áfram með foreldrum og skólastjórnendum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert