Alvarlegra en hósti og ræsking?

Aska ertir bæði augu og öndunarfæri.
Aska ertir bæði augu og öndunarfæri. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

„Fólk er með hósta og óþægindi í öndunarfærum. Við ætlum að athuga hvort askan hafi víðtækari áhrif á heilsuna,“ segir Haraldur Briem sóttvarnalæknir.

Eftir helgi hefst rannsókn á heilsufarslegum afleiðingum ösku og annarra efna frá eldgosinu í Eyjafjallajökli.

Rannsóknin er unnin í samvinnu við sóttvarnalækna og heilbrigðisstarfsmenn á Suðurlandi, lækna og hjúkrunarfræðinga lungnadeildar Landspítala og fleiri.

Lungnalæknar og hjúkrunarfræðingar fara heim til fólks, einkum á svæðinu frá Eyjafjöllum og í Vík, en einnig fyrir austan Mýrdalssand ef tími vinnst til. Fólki verður boðið upp á almenna læknisskoðun, spurt eftir einkennum og öndunarstarfsemin sérstaklega athuguð.


Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert