Vernda þarf börn gegn fátækt

Herdís Þorgeirsdóttir
Herdís Þorgeirsdóttir mbl.is

Þátttakendur á ráðstefnunni Tengslanet V - völd til kvenna skora á
stjórnvöld að grípa þegar til aðgerða til að vernda börn gegn
afleiðingum sárrar fátæktar. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á tveggja daga ráðstefnu sem lauk í gær, en þrjú hundruð konur tóku þátt í henni. 

Í heild hljómar ályktunin svo: „Ráðstefnan Tengslanet V- Völd til Kvenna-á Bifröst 27.-28. maí 2010 bendir á að fátækt er vaxandi í íslensku samfélagi. Fátækt er þjóðfélagsmein sem bitnar mest á börnum. Tengslanet V skorar ástjórnvöld að grípa þegar til aðgerða til að vernda börn gegn afleiðingum sárrar fátæktar.“

Jafnframt var samþykkt ályktun þar sem bent var á mikilvægi þess að gera
fræðslu um mannréttindi þ.á.m. fræðslu um samfélagslegan ávinning
kynjajafnréttis að skyldunámsefni í grunnskólum.

Þetta var í fimmta sinn sem ráðstefnan er haldin. Stjórnandi og skipuleggjandi ráðstefnunnar er dr. Herdís Þorgeirsdóttir lagaprófessor á Bifröst. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert