Fréttaskýring: Ójafnvægi á milli strandveiðisvæða

Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra undirritar reglugerð um strandveiðar.
Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra undirritar reglugerð um strandveiðar. mbl.is/Jakob Fannar Sigurðsson

Strandveiðar, sem hófust til bráðabirgða á síðasta ári og festar voru í sessi með lagasetningu í apríl sl., eru nú í fullum gangi, en veiðitímabilið í ár er frá maí og til loka ágúst. Eitt af því sem gagnrýnt hefur verið í fyrirkomulagi veiðanna er ójafnvægi á milli þeirra fjögurra strandveiðisvæða sem landinu er skipt upp í þegar kemur að úthlutun kvóta. Á tveimur þeirra, svæðum A og D, hefur kvótinn klárast þegar tiltölulega skammt hefur verið liðið á veiðitímabilin, sem er almanaksmánuðurinn, á meðan hann hefur dugað út tímabilið á svæðum B og C og jafnvel rúmlega það.

Ráðherra hefur valdið

Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, segir að þótt smábátasjómenn séu almennt séð ánægðir með strandveiðarnar sé ljóst að ákveðnir hnökrar séu á fyrirkomulagi þeirra, m.a. ójafnvægi á milli veiðisvæða þegar kemur að kvótaúthlutun.

Örn segir að ýmislegt spili þarna inn í, ekki síst það hversu vel veiðist á hverju svæði á hverjum tíma. Þá skipti einnig miklu máli sá fjöldi báta sem gerður er út á hverju svæði. Þannig séu yfir 200 bátar gerðir út á svæði A, sem m.a. Vestfirðir tilheyra, en mun færri bátar séu gerðir út á svæðum B og C. Staðan á milli svæða verði væntanlega endurskoðuð síðar í sumar og staðan jöfnuð á milli svæða , en sjávarútvegsráðherra hafi vald til þess að færa kvóta á milli þeirra.

Misjöfn vandamál

Páll Heiðar Hauksson, sem gerir út Apríl BA frá Patreksfirði, segir að strandveiðimenn á svæði A hafi aðeins getað róið samtals í 6 daga í maí og 5 daga í júní þegar kvótinn hafi verið uppurinn. Á sama tíma hafi jafnvel ekki náðst að veiða upp í kvótann á öðrum svæðum. „Mesta fiskeríið er væntanlega hér á svæðinu hjá mér og því hafa margir bátar skráð sig hér, sömuleiðis mesta nýtingin og stutt að fara á miðin,“ segir Páll.

Vandamálið er hins vegar þveröfugt hjá Gísla Gunnari Oddgeirssyni sem gerir út Sjöfn EA frá Grenivík sem tilheyrir svæði B. Þar vantar fleiri veiðidaga fremur en meiri kvóta. Gísli segir að ekki megi mikið út af bera svo veiða megi upp í úthlutaðan kvóta. Ekki sé heimilt að stunda strandveiðar nema fjóra daga í viku, allajafna, og þá geti veður alltaf sett strik í reikninginn. Hann segir að á svæði B séu vissulega færri bátar um hituna en á móti þurfi að hafa talsvert meira fyrir því að hafa uppi á aflanum.

Allur kvótinn veiddur

Jóhann Guðmundsson, aðstoðarmaður sjávarútvegsráðherra, segir að fjöldi báta á hverju veiðisvæði hafi eðlilega mikil áhrif í þessum efnum. Þannig hafi t.a.m. mjög margir ákveðið að gera út frá Vestfjörðum og fyrir vikið hafi fleiri verið um kvótann á því svæði, en mönnum sé frjálst að skrá sig þar sem þeir kjósa. Reynt hafi verið að bregðast við þessu m.a. með því að breyta veiðisvæðunum frá því sem var í fyrra og flytja Strandirnar af svæði A og yfir á svæði B án þess að láta kvóta fylgja með. Hann segir fyrirkomulagið annars vera í þróun og það verði væntanlega tekið til nánari skoðunar þegar sést betur hvernig spilast úr málum á öðrum svæðum. Jóhann leggur þó áherslu á að tryggt verði að veitt verði upp í allan strandveiðikvótann.

Strandveiðisvæði

» Strandveiðisvæði A nær frá Eyja- og Miklaholtshreppi á sunnanverðu Snæfellsnesi og norður til Súðavíkurhrepps á Vestfjörðum.

» Svæði B nær frá Strandabyggð á austanverðum Vestfjörðum til Grýtubakkahrepps við austanverðan Eyjafjörð. » Svæði C teygir sig frá Þingeyjarsveit í Þingeyjarsýslu og austur að Djúpavogshreppi á Austfjörðum.

» Svæði D nær síðan frá Sveitarfélaginu Hornafirði og alla leið vestur að Borgarbyggð í Borgarfjarðarsýslu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert