Hvetja fólk til að taka út

mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Samtök lánþega hafa sent frá sér viðvörun til innistæðueigenda þar sem þau hvetja þá til þess að taka innistæður sínar út úr fjármálafyrirtækjum og koma þeim í öruggt skjól. Segja þau að innistæður í bönkum landsins telji um 2.200 milljarða.

„Samtök lánþega vilja koma eftirfarandi viðvörun á framfæri í kjölfar ummæla Gylfa Magnússonar efnahags- og viðskiptaráðherra, og Más Guðmundssonar seðlabankastjóra, þess eðlis að bankarnir þoli ekki afleiðingar eigin lögbrota.

Talið er að innistæður í bönkum landsins telji um 2.200 milljarða og í ljósi þess að bæði efnahags- og viðskiptaráðherra sem og seðlabankastjóri landsins telja að bankarnir séu að falli komnir, vilja Samtök lánþega hvetja innistæðueigendur til að forða fjármunum sínum í betra og öruggara skjól.
Áhyggjur Samtaka lánþega helgast af því að áður hefur kostnaði við heildartryggingu á innistæðum verið ýtt yfir á skuldug heimili og því vandséð að þar sé meira fé að sækja.

Telja Samtök lánþega því rétt að þeir sem því geta komið við, forði fé sínu í öruggt skjól áður en spár fagráðherra bankamála og seðlabankastjóra ná fram að ganga," segir í viðvörun sem samtökin hafa sent frá sér til fjölmiðla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert