RÚV: Jóhanna í hjónaband

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, og sambýliskona hennar, Jónína Leósdóttir, voru með þeim fyrstu til að ganga í hjónaband eftir að ný hjúskaparlög tóku gildi, samkvæmt kvöldfréttum Ríkisútvarpsins.

Hjúskaparlög sem leyfa hjónaband fólks af sama kyni voru samþykkt á Alþingi fyrir stuttu en lögin tóku gildi í dag. Jóhanna og eiginkona hennar voru þegar í staðfestri samvist en lögðu inn umsókn um að henni yrði breytt í hjónaband um leið og nýju hjúskaparlögin tækju gildi. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert