Vara við framúrakstri

Lögregla með umferðareftirlit á Suðurlandsvegi.
Lögregla með umferðareftirlit á Suðurlandsvegi.

Umferðarstofa segir, að sér hafi borist upplýsingar um það að mikil umferð sé á Suðurlandsvegi og töluvert  um hættulegan framúrakstur.

Hefur Umferðarstofa eftir vegfaranda, sem hafði samband, að í Kömbunum hefði verið töluvert um það að ökumenn færu fram úr þar sem heil óbrotinn línu afmarkar bann við framúrakstri.

Umferðarstofa hvetur einnig ökumenn, sem eru með eftirvagna og mega þ.a.l. mest aka á 80 km hraða, til að haga akstri þannig að auðvelt sé að fara fram úr þeim.
 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert