Tókst ekki að synda til Vestmannaeyja

Benedikt Lafleur ætlaði að synda til eyja. Mynd úr safni.
Benedikt Lafleur ætlaði að synda til eyja. Mynd úr safni. mbl.is/Jón Svavarsson

Sundkappanum Benedikt Lafleur tókst ekki að synda til Vestmannaeyja í dag.  Ástæðuna segir hann vera kaldari strauma en hann hafi búist við auk þess sem hann sé ekki nægilega staðkunnugur.

Benedikt lagðist til sunds í Bakkafjöru og var áætlaður sundtími 5 til 6 klukkutímar. Í samtali við blaðamann sagðist hann ekki nægilega staðkunnugur á þessum slóðum. Bakkafjara hafi einfaldlega ekki verið heppilegur staður til að hefja sundið. Kalt jökulvatn sem renni úr Markarfljóti í gegnum sundleiðina hafi gert honum erfitt fyrir.

„Allt leit vel út í byrjun. Logn og gott veður en svo fór að blása á móti mér kaldur vindur“.

„Ég ætla að  gera þetta öðruvísi næst,“ segir Benedikt sem er harðákveðinn að reyna aftur.

Þess má geta að enginn hefur synt frá landi til eyja þótt oft hafi verið synt frá eyjum til lands. 

Benedikt Lafleur gerir sig kláran fyrir Vestmannaeyjasundið.
Benedikt Lafleur gerir sig kláran fyrir Vestmannaeyjasundið. mbl.is
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert