Fundað stíft frá og með 17. ágúst

Atli Gíslason í ræðustóli Alþingis.
Atli Gíslason í ræðustóli Alþingis. mbl.is/Árni Sæberg

Þingmannanefnd Alþingis um rannsóknarskýrsluna stefnir að því að funda næst 17. ágúst næstkomandi.

„Við munum funda eins oft og kostur er, vonandi daglega, þangað til þingið kemur aftur saman. Það er af nógu að taka,“ segir Atli Gíslason, formaður nefndarinnar. „Við ætlum að nota tímann vel og vandlega og reyna að keyra þetta áfram.“

Nefndin á að gera grein fyrir tillögum sínum í skýrslu sem hún á að leggja fram fyrir þinglok í september. Í Morgunblaðinu í dag segir Atli þó enn óráðið hvort það tekst.

Helstu verkefni nefndarinnar eru pólitískt uppgjör á efnahagshruninu – að taka afstöðu til ályktana í rannsóknarskýrslunni og hvaða lærdóm megi draga af þeim, lagaúrbætur og ráðherraábyrgð.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert