Þáttur háskólanna í hruninu rannsakaður

Skýrsla rannsóknarnefndarinnar.
Skýrsla rannsóknarnefndarinnar. mbl.is/Ernir Eyjólfsson

Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra hefur ákveðið að veita einni milljón króna af ráðstöfunarfé sínu til að styrkja rannsóknir á íslensku háskólakerfi og þætti þess í hruninu.

Styrkurinn rennur til rannsóknarstofu um háskóla en Páll Skúlason prófessor og fyrrverandi rektor veitir henni forystu.

„Með styrknum vill ráðherra efla nýlega rannsóknarstofu um háskóla til að taka forystu í þessu mikilvæga verkefni. Þá er styrkurinn einnig hugsaður til að vekja fræðimenn og stjórnendur háskóla til umhugsunar um siðferðilega ábyrgð sína og skyldur við samfélagið.

Þrátt fyrir takmarkaða fjármuni er að mati ráðherra aldrei eins mikilvægt og nú að rannsaka stjórnkerfi, lagaumhverfi, starfshætti, menningu og siðferði í háskólakerfinu svo betur sé tryggt að markmiðum með háskólastarfi sé fullnægt. Það er liður í því að byggja upp gagnrýnna, upplýstara og öflugra samfélag á Íslandi.

Hlutverk háskóla er skilgreint í lögum um háskóla: „Hlutverk háskóla er að stuðla að sköpun og miðlun þekkingar og færni til nemenda og samfélagsins alls. Starf háskóla miðar að því að styrkja innviði íslensks samfélags…“.

Í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis kemur ýmislegt fram sem bendir til að þessum hlutverkum hafi ekki verið nægilega vel sinnt," segir í fréttatilkynningu frá menntamálaráðuneytinu

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert