Kostnaður vegna lyfja við ADHD þrefaldast

Algengasta lyfið við ADHD er rítalín.
Algengasta lyfið við ADHD er rítalín. Friðrik Tryggvason

Kostnaður sjúkratrygginga á þessu ári vegna lyfja við ADHD stefnir í að þrefaldast frá árinu 2006. Athygli vekur að mikil aukning er á notkun lyfsins hjá fullorðnum. Notkun lyfja við ADHD er einnig talsvert meiri hér á landi en annars staðar á Norðurlöndum.

Í nýútgefnu fréttabréfi Sjúkratrygginga Íslands kemur fram að kostnaður sjúkratrygginga á þessu ári vegna lyfja við ADHD stefnir í 762 milljónir kr. sem er nær þreföld aukning miðað við árið 2006. Lyfið metýlfenídat (Ritalin, Ritalin Uno og Concerta) er kostnaðarmesta lyfið hjá sjúkratryggingum

Athygli vekur að mesta aukning í notkun lyfsins sést hjá fullorðnum. Kostnaður vegna þeirra sem eru 20 ára og eldri nam 200 milljónum kr. eða um 43% af heildarkostnaði.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert