Engir bílar í Hafnarstræti

Hluti Hafnarstrætis er nú lokaður fyrir bílaumferð.
Hluti Hafnarstrætis er nú lokaður fyrir bílaumferð. Jakob Fannar Sigurðsson

Hafnarstræti hefur nú verið verið lokað fyrir bílaumferð við Pósthússtræti til að gefa gangandi, hjólandi og verslunum betra rými. Þeir sem reka verslanir í götunni ætla að nýta sér hana með ýmsu móti í september til dæmis með sölutjöldum, samkvæmt tilkynningu frá borginni.
 
Hugmyndin að þessari breytingu er komin frá verslunar- og þjónustuaðilum við götuna og hafa þeir nú leyfi til þess að skapa skemmtilega útistemmningu í götunni. Bílastæði verða ekki heimil í götunni í september. Innkeyrsla fyrir bifreiðar sem þjóna fyrirtækjum í götunni er heimiluð frá Tryggvagötu.

Reykjavíkurborg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert