Herjólfur siglir ekki í dag

Farþegar ganga um borð í Herjólf.
Farþegar ganga um borð í Herjólf. mbl.is/Kristinn

Ljóst er að Vestmannaeyjaferjan Herjólfur siglir ekkert í dag. Gert er hins vegar ráð fyrir þremur ferðum á morgun, þeirri fyrstu klukkan 6 frá Eyjum og 7:30 frá Landeyjahöfn. Síðan verður siglt klukkan 14:30 og 17:30 frá Eyjum og klukkan 16 og 19 til baka.

Næstu daga mun Herjólfur sigla milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar eftir sjávarföllum og áætlun sem unnin er í samráði við Siglingastofnun. Gosefni úr Eyjafjallajökli hægði á siglingu Herjólfs inn í Landeyjahöfn í gær og tók skipið niðri í höfninni. Vegagerðin segir, að ekki sé beinlínis um að ræða að Herjólf taki niður í höfninni vegna þessa heldur valdi fyrst og fremst þykkt og magn gosefnanna því, að það hægi á siglingunni skipsins.

Vegagerðin segir, að viðvarandi óhagstæðar vindáttir hafi leitt til þess að gosefni hafa safnast saman fyrir framan höfnina. Skarð í rifið fyrir utan innsiglinguna í höfnina sé hinsvegar vel opið. Dýpkunarskip býður færis í Reykjavík og gæti verið komið í Landeyjahöfn á fimmtudag.

Lóðsinn í Vestmannaeyjum hefur unnið að því að mæla dýptina í höfninni til að meta aðstæður. Stórstreymt er næstu daga og verða þær aðstæður nýttar til að sigla megi Herjólfi milli lands og Eyja svo oft sem kostur er.

Staðan verður endurmetin þegar líða tekur á vikuna og ljóst verður með dýpkun hafnarinnar.

Áætlun Herjólfs næstu daga 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert