Hægt að sækja 50 milljarða

Fiskiskipið Stormur.
Fiskiskipið Stormur.

Raunhæft er að auka útflutningsverðmæti íslenskra sjávarafurða um 50 milljarða á næstu fimm árum, að mati Kristján Hjaltasonar sérfræðings. Hann leggur til að veiðum á makríl, loðnu og síld til bræðslu verði hætt og allur afli unninn um borð eða fluttur í land til vinnslu. Þá beri að auka fiskeldi.  

Jafnframt leggur til Kristján, sem er ráðgjafi hjá Facts of Seafoods, til að stuðlað verði að betri veiðiaðferðum á bolfiski og bættri meðferð um borð en saman eiga þessar tillögur að skila þjóðarbúinu stórauknum tekjum.

Hann leggur einnig til aukna vinnslu á ferskum afurðum og uppsjávarfiski til manneldis; nýjar vinnslulínur fyrir aukaafla og áherslu á að vinnslan byggi á góðu hráefni, vöruþróun og framförum í framleiðslutækni.

Opni skrifstofur í Afríku

Kristján telur einnig mikilvægt að hlúa að rannsóknum, þróun og menntun. Það sé liður í að lengja í virðisaukakeðjunni, svo sem þegar kemur að meðferð afla og auknu geymsluþoli. Með því að þróa nýjar pakkningar fyrir ferskar og frystar afurði megi stuðla að umtalsverði verðmætaaukningu.

Hann telur mikil sóknarfæri í markaðssetningu, svo sem með því að byggja upp markaðsstöðu fyrir íslenskar afurðir á nýjum mörkuðum, s.s. í Rússlandi og Afríkuríkjum.

Kristján gerði grein fyrir hugmyndum sínum á íslensku sjávarútvegsráðstefnunni fyrir skömmu og má nálgast fyrirlestur hans hér.

Meðal tillagna Kristjáns um leiðir til að auka verðmæti sjávarafurða.
Meðal tillagna Kristjáns um leiðir til að auka verðmæti sjávarafurða.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert