Tilviljun réð hvaða kirkja var brennd

Frá brunanum
Frá brunanum

Tveir piltar og tvær stúlkur á aldrinum 17-20 ára hafa játað að hafa kveikt í Krýsuvíkurkirkju í ársbyrjun en kirkjan gjöreyðilagðist í brunanum.  Ungmennin helltu úr bensínbrúsa inni í kirkjunni og kveiktu í. Þau yfirgáfu síðan staðinn en höfðu jafnframt meðferðis smámynt sem þau stálu úr söfunarbauki Krýsuvíkurkirkju.

Við yfirheyrslur hjá lögreglu kom fram að þau ætluðu sér að kveikja í einhverri kirkju en tilviljun virðist hafi ráðið því að Krýsuvíkurkirkja varð fyrir valinu. Ungmennin hafa áður komið við sögu hjá lögreglu, mismikið þó, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.


Líkt og fram kom í frétt mbl.is í gær greindi Þórhallur Heimisson sóknarprestur í Hafnarfirði frá játningu ungmennanna á bloggvef sínum í gær.

Slökkviliðið í Grindavík var kallað út vegna eldsins aðfaranótt 2. janúar en þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang  var kirkjan fallin og gátu þeir ekki gert annað en að slökkva í glæðunum. 

Krýsuvíkurkirkja var byggð árið 1857, fyrir 153 árum, og endurbyggð og endurvígð árið 1964. Kirkjan var í vörslu þjóðminjavarðar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert