Blæddi úr eyra prestsins

Eggjum rigndi yfir þingmenn þegar þeir gengu úr Dómkirkjunni í …
Eggjum rigndi yfir þingmenn þegar þeir gengu úr Dómkirkjunni í Alþingishúsið. mbl.is/Júlíus

Ein þeirra sem fékk í sig egg við Alþingishúsið í dag er presturinn, séra Halldóra J. Þorvarðardóttir, sem fáeinum mínútum áður flutti þingheimi kærleiksboðskapinn og bað fyrir þingi og þjóð. Eggið lenti  lenti á eyra hennar svo blæddi úr hlustinni á eftir og vanginn bólgnaði

Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingar, greinir frá þessu á bloggi sínu en séra Halldóra er systir hennar. „Ég get þó ekki varist þeirri hugsun hvað þarna hefði gerst ef þetta hefði verið glerflaska," skrifar Ólína á blogg sitt á Eyjunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert