Mótmæla á Ísafirði

Frá mótmælafundi á Silfurtorgi.
Frá mótmælafundi á Silfurtorgi. mynd/bb.is

Hópur fólks á Ísafirði ætlar að sýna mótmælendum í Reykjavík samstöðu í dag með því að koma saman á Silfurtorgi kl. 19:30. Samkvæmt heimildum bb.is er ætlunin að mæta með pönnur, potta og sleifar og láta í sér heyra skamma stund.

Um 1400 manns hafa boðað komu sína á Austurvöll í Reykjavík í kvöld þegar Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra flytur stefnuræðu sína á Alþingi. Ekki er vitað hve margir hafi í hyggju að mæta á Silfurtorg í kvöld.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert