Fjórir í haldi vegna árásar

Hveragerði.
Hveragerði. www.mats.is

Þrír karlmenn og ein kona sitja nú í fangaklefa á Selfossi að sögn lögreglunnar. „Þau ruddust þarna fjögur inn í íbúðarhús í Hveragerði í gærkvöld um ellefuleytið og veittust að húsráðendum,“ segir varðstjóri lögreglunnar á Selfossi.

Heimilisfólkinu tókst þó að koma þeim út og kalla til lögreglu. Lögreglan fann fólkið í húsi í Hveragerði við neyslu fíkniefna. Lögreglan telur þau ekki hafa átt neitt sökótt við húsráðendur. 

Þau bíða nú skýrslutöku sem fer fram í dag.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert