„Aðför að lífeyrissparnaði“

Kristján Gunnarsson, formaður Starfsgreinasambandsins.
Kristján Gunnarsson, formaður Starfsgreinasambandsins. mbl.is

„Hugmyndir um almenna lækkun skulda sem á að greiða með eftirlaunum verkafólks er aðför að lífeyrissparnaði og á það er ekki hægt að fallast,“ segir í ályktun formannafundar Starfsgreinasambandsins sem lauk í dag á Egilstöðum.

Á vefsíðu sambandsins kemur fram að mikil samstaða og samhugur hafi verið á fundinum meðal formanna aðildarfélaga sambandsins, þar sem staða efnahagsmála og undirbúningur kjaraviðræðna var til umfjöllunar.  Þar segir að megin markmið komandi kjarasamninga verði að stöðva þá kjara- og kaupmáttarskerðingu sem orðið hefur undanfarin tvö ár og endurreisa kaupmáttinn að nýju.

Þá er einnig haft orð á að heilbrigðisþjónustan þurfi að vera skilvirk og hagkvæm. Tryggja verði öfluga nærþjónustu heilbrigðisstofnana í heimabyggð.

„Hvers konar fljótræði eins og virðist vera raunin í fram komnum niðurskurðartillögum fjárlagafrumvarpsins er ekki til þess fallið að skila árangri,“ segir í ályktun um heilbrigðiskerfið sem samþykkt var einróma á fundinum ásamt ályktun um kjaramál.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert