Snýst um stól fyrir Dag

Dagur B. Eggertsson og Jón Gnarr.
Dagur B. Eggertsson og Jón Gnarr. mbl.is/Ómar

„Þessi tillaga sem liggur fyrir af hálfu meirihlutans losar borgarstjórann undan daglegum rekstri borgarinnar. Það er verið að færa öll svið, allar stofnanir og þjónustu við borgarbúa úr hans höndum og yfir á herðar skrifstofustjóra borgarstjóra.

Í þeim tilgangi er stofnað nýtt embætti og það er ekki einu sinni auglýst,“ segir Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, um þá tillögu meirihlutans í Reykjavík að færa hluta af starfsskyldum borgarstjóra yfir á herðar skrifstofustjóra hans.

„Það er sérstakt að velta upp hugmynd sem þessari þegar alvarleg tíðindi berast í sömu viku um að til standi að segja upp tugum starfsmanna hjá Orkuveitu Reykjavíkur.

Það er eiginlega óhjákvæmilegt að velta fyrir sér hvort einhverjir samningar í þessa veru hafi verið gerðir þegar samstarf Besta flokksins og Samfylkingar komst á. Ef það kemur annar borgarstjóri í Reykjavík þá gef ég mér að það verði Dagur B. Eggertsson.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert