Settu upp hindranir til að stöðva för 14 og 15 ára pilta

mbl.is/Júlíus

Lögreglan stöðvaði í nótt bíl í Húnavatnssýslu en á honum voru tveir 14 og 15 ára piltar sem flúið höfðu af vistheimili við Sauðárkrók. Lögreglan á Blönduósi setti upp hindranir og náði að stöðva bílinn. Hann er eitthvað skemmdur en engin slys urðu á fólki.

Lögreglan á Sauðarkróki fékk beiðni um aðstoð um kl. 4:30 í nótt frá vistheimilinu, en tveir piltar sem þar dvöldu höfðu stolið bíl sem þar var og lagt af stað í átt til Reykjavíkur. Einhver atburðarrás átti sér stað á heimilinu áður en þeir stálu bílnum.

Lögreglan á Sauðárkróki fór á eftir bílnum, en óskað eftir aðstoð frá Blönduósi við að stöðva hann. Hún lokaði veginum við bæinn Breiðavað skammt austan við Blönduós með aðstoð slökkviliðsins á Blönduósi. Þar endaði ferð piltanna um kl. 5:30 í nótt. Þeir höfðu þá ekið tæplega 100 km leið.

Piltarnir voru vistaðir í fangageymslu. Skýrsla verður tekin af þeim, en mál þeirra er í höndum barnaverndarnefndar og vistheimilisins þar sem þeir dvöldu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert