Reykjanesbær fær hæsta framlagið

Horft yfir Reykjanesbæ.
Horft yfir Reykjanesbæ.

Reykjanesbær fær hæsta tekjujöfnunarframlagið úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, samkvæmt tillögu ráðgjafarnefndar sjóðsins. Fær Reykjanes rúmar 211 milljónir króna úr sjóðnum, Rangárþing eystra fær 82 milljónir og Eyjafjarðarsveit 74 milljónir. Alls er úthlutað 1228 milljónum króna á þessu ári.

Í dag koma ¾ hlutar af áætluðu framlagi til greiðslu eða samtals um 921 milljón króna.  Uppgjör framlaganna  fer fram fyrir áramót á grundvelli leiðréttrar skrár um álagðar skatttekjur sveitarfélaganna.

Listi yfir framlögin

 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert