Niðurstaðan gerbreytir allri umræðu

„Því miður tekur þetta bara lengri tíma en ráð var fyrir gert“, sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráherra, að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun, spurð um aðgerðir stjórnvalda vegna skuldavanda heimila og fyrirtækja.  

Jóhanna sagðist ekki þora að lofa hvenær verkinu lyki en það væri allavega ekki í næstu viku.

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, sagðist viss um að niðurstaða reiknimeistaranna myndi gerbreyta allri umræðu um málið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert