Fundu fíkniefni á Sauðárkróki

Lögreglan á Sauðárkróki lagði hald á um tíu grömm af hvítu efni, sem talið er að sé amfetamín. Efnið fannst við húsleit í húsi í bænum. Lögreglan fékk aðstoð rannsóknarlögreglumanna og leitarhunds frá Akureyri við húsleitina.

Tveir íbúar eru í húsinu og eru þeir sterklega grunaðir um að eiga efnið. Líklegast þykir að efnið hafi verið ætlað til sölu. Íbúarnir í umræddu húsi hafa áður komið við sögu hjá lögreglunni í sambærilegum málum. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert