Menning velti 191 milljarði 2009

Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra. mbl.is/Eggert

Árið 2009 var velta af menningu 191 milljarður, sem var 6% af heildarveltunni það árið. Þetta kom fram á fréttamannafundi í Bíó Paradís í morgun.

Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, sagði á fundinum að menningin væri það sem gerði okkur að þjóð.

Því væri það ákaflega mikilvægt á þessum tímum að styrkja menningu sem atvinnuveg í dag. 

Á fundinum kynnti Margrét Sigrún Sigurðardóttir niðurstöður rannsóknar á hagrænum áhrifum skapandi greina.

Gögnin voru fengin frá Fjársýslu ríkisins og sambandi íslenskra sveitarfélaga og velta af menningarstarfsemi var kortlögð.

Samkvæmt rannsókninni var velta í skapandi greinum árið var 191 milljarður.

Virðisaukaskattsskyld velta  af menningarstarfsemi var 165 milljarður, sem er rúm 6% af slíkri veltu á landinu öllu. Landbúnaður 1% af heildarveltu og fiskveiðar 4%. Framleiðsla málma var þá 10%.

Árið 2008 voru yfir 10.000 ársverk unnin í tengslum við skapandi greinar.

Settur verður á stofn starfshópur sem á að vinna að tillögum á grunni rannsóknarinnar.

Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, sagði á fundinum að rannsóknin væri afar mikilvæg í því skyni að marka atvinnustefnu í menningarstarfsemi.

Hún sagðist vona að niðurstöður rannsóknarinnar yrðu til þess að opna augu fólks fyrir því hversu mikilvægar skapandi greinar væru þjóðarbúinu. Þær gegndu þó ekki síður félagslegu hlutverki.

Hún sagði að í sínu ráðuneyti hefði verið ýtt undir skapandi greinar, enn væri þó langt í land til að koma málum í viðunandi horf. Skapandi verkefni væru á bak við um helming allra úthlutana til atvinnusköpunar.

Nú er að hefjast vinna við að endurskoða endurgreiðslulög vegna kvikmynda, að sögn Katrínar og hún sagðist finna fyrir vaxandi áhuga erlendra kvikmyndagerðarmanna á Íslandi. 

Hún sagði ráðuneytið leggja til 4 milljónir króna sem verja á til rannsóknar á  því hvernig stoðkerfi atvinnulífsins getur sem best komið til móts við þarfir hinna skapandi greina. Á næsta ári verður sérstök áhersla lögð á skapandi greinar við veitingu styrkja úr hinum ýmsu sjóðum.„ Þannig erum við að feta okkur í átt að fjölbreyttara atvinnulífi,“ sagði Katrín Júlíusdóttir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert