Ræningjarnir búnir að játa

Mennirnir tveir hafa játað aðild sína að ráninu í verslun …
Mennirnir tveir hafa játað aðild sína að ráninu í verslun Leonard.

Lögreglan hefur sleppt mönnunum tveimur sem teknir voru í gær vegna gruns um aðild að úraráninu í verslun Leonard í Kringlunni. Hafa þeir játað aðild sína að ráninu og eiga því yfir höfði sér ákæru.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni heldur rannsókn málsins áfram. Húsleitir fóru fram á höfuðborgarsvæðinu í gær en mennirnir tóku með sér úr úr versluninni að verðmæti um fimm milljónir króna.

Annar mannanna, sem er á þrítugsaldri, á að baki brotaferil tengdum fíkniefnaneyslu en hinn, sem er undir tvítugu, hefur ekki komið við sögu lögreglunnar áður. Fleiri hafa ekki verið teknir vegna rannsóknar á ráninu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert