Spítalar sameinaðir 1. febrúar

Landspítalinn við Hringbraut.
Landspítalinn við Hringbraut. mbl.is/Júlíus

Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, segir að spítalinn hafi fengið bréf frá heilbrigðisráðherra þar sem segir að ákveðið hafi verið að sameina Landspítala og St. Jósefsspítala í Hafnarfirði og að sameiningin eigi að taka gildi 1. febrúar á næsta ári.

Fram kemur í föstudagspistli sem Björn skrifar á vef Landspítalans að skipuð hafi verið verkefnisstjórn yfir sameiningunni.

Þá segir hann að bráðabirgðauppgjör spítalans fyrir fyrstu 11 mánuði ársins liggi nú fyrir. Það sýni að rekstur spítalans sé í jafnvægi.

„Ef tölur eru skoðaðar sést t.d. að launakostnaður spítalans fyrstu 11 mánuði ársins hefur lækkað um 1.400 milljónir. Þetta hefði aldrei gengið nema með samstilltu átaki hjá öllu starfsfólki spítalans og er frábær árangur á samdráttartímum,“ skrifar Björn.

St. Jósefsspítali í Hafnarfirði.
St. Jósefsspítali í Hafnarfirði. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert